Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims segir veiðigjaldið í raun hafa lækkað í ár frá árinu áður. Hann segir að það sé líkt og alþingismenn viti ekkert hvað það sé sem þeir samþykkja en mikil og löng umræða fór fram um hækkun veiðigjalda síðasta sumar á þinginu. Hann segir enga þora að fjárfesta lengur í sjávarútvegi, kerfið sé alltof ófyrirsjáanlegt.