Sex mánuðir fyrir fjórar tilefnislausar og fólskulegar líkamsárásir

Ungur maður hefur hlotið sex mánaða fangelsisdóm, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir fjórar líkamsárásir. Með þeim rauf hann skilorð vegna dóms sem hann hafði áður hlotið fyrir tvær líkamsárásir.Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi manninn en árásirnar áttu sér stað í Bolungarvík og á Ísafirði.Í einni árásinni réðst maðurinn á systkini fyrir utan heimili þeirra á Bolungarvík. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa bitið manninn í litla fingur, veitt honum högg í andlitið og sparkað í hann, og að hafa sparkað í og tekið konuna hálstaki.Hinar líkamsárásirnar áttu sér stað á skemmtistaðnum Edinborg á Ísafirði.Við ákvörðun refsingar vísaði dómari til þess að maðurinn hefði rofið skilorð og að árásirnar hafi verið tilefnislausar og fólskulegar. Maðurinn lýsti því fyrir dómi að hann hefði látið af óh
Sex mánuðir fyrir fjórar tilefnislausar og fólskulegar líkamsárásir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd