Enn eru lausir endar í fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Flýti- og umferðargjöld eru eitt af því sem er til skoðunar en fjármálaráðherra segir að verið sé að skoða aðrar lausnir.Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður 2019 og uppfærður fimm árum síðar. Hann er fjármagnaður með beinum framlögum ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu auk þess sem gert er ráð fyrir að tekjur af sölu lóða í Keldnalandi renni til sáttmálans frá og með 2028.Frá 2030 er gert ráð fyrir að tekjur af umferð, eða önnur fjármögnun, standi undir framkvæmdum.Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að undanfarið hafi átt sér samtal milli ríkis og sveitarfélaga um fjármögnunina sem hann segir að hafi að hluta verið skilin eftir í lausu lofti. Viðbúið sé að tekjur af Keldnalandi sk