Lögreglan á Norðurlandi vestra lagði hald á tæp 30 grömm af kannabis, 140 grömm af ketamíni, 36 MDMA töflur, MDMA kristalla og 84 pappastykki er innihéldu LSD eftir leit í bíl á Blönduósi í apríl.Þetta kemur fram í ákæru sem fréttastofa fékk afhenta nýverið.Ökumaður hafði verið stöðvaður við akstur í Húnabyggð þann 19. apríl og bíllinn færður að lögreglustöðinni á Blönduósi til skoðunar.Þá reyndist farþegi bílsins, maður um tvítugt, hafa geymt þar fyrrgreind fíkniefni, skot í 22 kalíbera riffil og hníf með tíu sentímetra blaði og stálskefti.Saksóknari fer fram á að hann verði dæmdur til refsingar fyrir vörslu fíkniefnanna og brot á vopnalögum. Málið verður tekið fyrir í héraðsdómi Norðurlands vestra í nóvember.