Samhjálp á hrakhólum í heilt ár

Kaffistofa Samhjálpar hefur verið mjög til umfjöllunar síðastliðið ár. Flytja þurfti hana úr Borgartúni í október fyrir ári og húsnæði hafði fundist við Grensásveg en þangað fluttist kaffistofan aldrei. Eftir að málið hafði þvælst í kerfinu um langa hríð og byggingarleyfi hafði verið veitt kom fram opinber andstaða frá hluta íbúa og fyrirtækja í nágrenninu. Þá fór fram grenndarkynning og í júní fór málið fyrir Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, sem í júní felldi úr gildi leyfi Reykjavíkurborgar fyrir breytingunum. Nefndin taldi að borgin hefði átt að fara í deiliskipulagsferli vegna mögulegra grenndaráhrifa áður en byggingarleyfið var samþykkt.Niðurstaðan þýddi í reynd að Samhjálp gat ekki hafið starfsemi á Grensásvegi á þeim forsendum sem fyrir lágu og fyrirhuguð opnun féll niður.
Samhjálp á hrakhólum í heilt ár

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd