Veikleiki á forritunarmáli sem jafnvel þúsundir íslenskra vefsíða nýta sér getur leitt til þess að netþrjótar komist yfir gögn sem finna má á vefsíðunum. Háskóli Íslands er meðal þeirra sem lokað hafa síðunum sínum tímabundið vegna veikleikans. Neyðaruppfærsla er komin og hvetur forstöðumaður CERT-IS alla til að uppfæra síðurnar sem fyrst.