Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausamunum í bænum.Eftir veðrið voru lagðar á borð áleitnar spurningar um viðbragð og viðvaranir – þeirra á meðal hvort Veðurstofan ætti að gefa út fleiri staðbundnar litakvarðaðar viðvaranir. Spásvæðin ná í dag yfir landshluta og eina staðbundna viðvörunin er fyrir höfuðborgarsvæðið. Rætt var um þessi mál í Þetta helst í dag.Veðurfræðingur vill að Veðurstofan gefi út fleiri staðbundnar litakvarðaðar viðvaranir þegar það á við. Svæðin séu of stór núna. Veðurstofustjóri segir það ekki á dagskrá en verið sé að skoða sértækari viðvaranir. VILL TAKA VIÐVARANAKERFI VEÐURSTOFUNNAR „UPP Á NÆSTA STIG“ Einar Sveinbjörnsson segir að núgildandi veðurviðvar