Netöryggissveitin CERT-IS varar við því að tveir mjög alvarlegir veikleikar í PHP-forritunarmálinu gætu gert óprúttnum aðilum kleift að ná stjórn á viðkvæmum kerfum í gegnum netið. Mikill fjöldi vefja er knúinn áfram af forritunarmálinu. Þar á meðal eru síður sem byggja á WordPress, Drupal og Joomla. Unnið er að gerð öryggisuppfærslu sem á að verða aðgengileg klukkan tvö síðdegis í dag. CERT-IS hvetur fyrirtæki og stofnanir sem reka PHP-kerfi til að ráðast í öryggisuppfærslu um leið og þær verða aðgengilegar. Sé það ekki hægt gæti þurft að takmarka aðgang að kerfum eða taka þau niður tímabundið.Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að nágrannalönd hafi gripið til aðgerða. Þannig hafi vefsíða auðkennisþjónustu Hollands, stór fréttasíða og einhverjar vefsíður verið teknar niður. Finnar æ