Mjög lítið er að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Ríkisstjórnin hefur aðeins komið með rúmlega þrjátíu af þeim tæplega 160 málum í þingið sem boðuð eru á þingmálaskrá. Fyrrverandi ráðherra gagnrýndi þetta harðlega á Alþingi og skoraði á forseta þingsins að beita sér. FÁ MÁL KOMIN FRÁ RÍKISSTJÓRNINNI Alþingi var sett þriðjudaginn 8. september og síðan þá hafa verið haldnir 20 þingfundir. Kjördæmavika var um mánaðamótin og þá eru ekki þingfundir og í næstu viku er þing Norðurlandaráðs og þá eru almennt ekki þingfundir. Tæplega 160 mál eru á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir þennan þingvetur og hefur verið mælt fyrir rúmlega þrjátíu af þeim. Þar á meðal eru fjárlögin og frumvörp sem þeim tengjast, húsaleigulög, oft kölluð leigubremsa, og bókun 35 en bæði það mál og h