Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði karlmann í síðustu viku af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Hann var ákærður fyrir að senda stúlkunni ítrekað kynferðisleg skilaboð og að hafa mælt sér mót við hana til að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök.Maðurinn og stúlkan voru í samskiptum á Snapchat í fjóra mánuði 2023. Þá var stúlkan 14 ára og maðurinn á þrítugsaldri.Samskipti þeirra komu til kasta lögreglu þegar stúlkan og móðir hennar mættu á lögreglustöð og tilkynntu áreiti af hendi fullorðins manns sem hefði beðið hana að senda sér myndir, þar á meðal nektarmyndir. Stúlkan sagðist hafa sagt manninum hversu gömul hún hefði verið.Maðurinn sagðist ekki hafa vitað aldur stúlkunnar fyrr en samskipti þeirra höfðu staðið lengi. Hann hefði í fyrstu talið hana 18 eða 19 ára. Við þessa u