Grillmarkaðurinn fagnar 15 ára afmæli í ár en staðurinn var byggður frá grunni á brunareitnum í miðbæ Reykjavíkur skömmu eftir hrun. Eftir nokkur erfið ár í kjölfar falls WOW air og heimsfaraldurs segir Ágúst Reynisson, stofnandi og eigandi staðarins, að Grillmarkaðurinn hafi aldrei staðið betur. Hagnaður félagsins nam 104,5 milljónum króna í fyrra samanborið við 24 milljónir árið áður.