Bara tala var stofnað sumarið 2023 og aðeins tveimur mánuðum síðar hafði ræstingafyrirtækið Dagar innleitt lausnina fyrir allt sitt erlenda starfsfólk. Í dag hafa um 200 vinnustaðir tekið hana upp og segir framkvæmdastjórinn félagið hafa sýnt fram á að nýsköpunarfyrirtæki með skýrt samfélagslegt hlutverk geti jafnframt skilað jákvæðum rekstri.