Breska þingið hefur samþykkt umdeilt lagafrumvarp sem ætlað er að greiða fyrir rannsóknum á brotum sem framin voru í átökunum á Norður-Írlandi. Fyrrum yfirmenn breska hersins hafa varað við því að löggjöfin geti leitt til þess að fyrrverandi hermenn verði sóttir til saka vegna áratugagamalla atburða.