Eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð segir allt ógirt land á Íslandi virðast hafa verið tekið einhvers konar eignarnámi með dómi í máli hans gegn Fjarðabyggð. Dómstóll taldi sveitarfélagið ekki hafa skyldu til að smala ágangsfé af jörðinni því féð hefði komið úr sameiginlegum bithaga.