Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og Aberdeen

Til skoðunar er að koma á siglingum á milli borgarinnar Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarfélagið á í viðræðum við hafnaryfirvöld þar í landi.„Þetta er nú hugmynd sem er lengi búin að vera fljótandi hér í þessu sveitarfélagi eða alveg síðan ferjan hætti að sigla á sínum tíma. Norræna sigldi einu sinni þannig leið að hún kom við í Skotlandi en það eru orðin ansi mörg ár síðan,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Múlaþingi en hún er einnig hafnarstjóri. Haft er eftir Bob Sanguinetti, hafnarstjóra í Aberdeen í fjölmiðlinum AberdeenLive að mikill áhugi sé fyrir siglingum á milli borgarinnar og Seyðisfjarðar.Sérferja á vegum einkaaðila myndi sigla á milli Seyðisfjarðar og Aberdeen og segir Dagmar að samtöl séu hafin við einkaaðila sem hafi áhuga á því að smíða skip til v
Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og Aberdeen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd