Missti báða fætur eftir árásina

Ástralskur þingmaður sem keyrt var á í fyrradag missti báða fætur. Læknar sem gerðu aðgerð á henni töldu nauðsynlegt að fjarlægja þá báða.Phil Haines, eiginmaður Helen Haines, greindi frá þessu í dag. „Góðu fréttirnar eru að Helen lifir og er í stöðugu ástandi. Það er það mikilvægasta fyrir fjölskyldu okkar.“„Tvennt það mikilvægasta í fari Helenar er hjarta hennar og hugur.“Lögregla handtók hinn 43 ára Brendan Nugent fyrir árásina á Haines. Hann er grunaður um að hafa ekið vísvitandi á hana. Meðal ákæra sem hann á yfir höfði sér er ein fyrir að valda líkamstjóni af yfirlögðu ráði með hættulegum akstri og önnur fyrir árás á embættismann. Helen Haines stóð við bíl sinn þegar ekið var á hana.
Missti báða fætur eftir árásina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd