Vegfarendur ættu að hafa varann á sér því víða er hálka eða snjóþekja á vegum úti. Einnig er hálka á vissum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.Fram kemur á umferðarvef Vegagerðarinnar að hálka eða hálkublettir séu víða frá Vesturlandi um Norðurland, Austurland og Suðausturland. Snjóþekja er á Dynjandisheiði og Fjarðarheiði.Snjóað gæti í 200 metra hæð í dag.RÚV / Birgir Þór Harðarson