Um leið og ríkisstjórnin kallaði eftir samráði um lagagerð sem myndi koma á innviða- og náttúrugjaldi við Þingvelli, Geysi og Gullfoss, hófu landeigendur nálægt Gullfossi að rukka fyrir bílastæði við veitingastað sinn, sem ferðalangar hafa notað til að bera fossinn augum. Eigandinn segir tímasetninguna „tilviljun“. Gullfosskaffi ehf. byggði upp bílastæðið ofan við Gullfoss á einkalandi við samnefndan veitingastað sinn. Greiddar...