Svalt og sums staðar úrkoma

Hiti verður sums staðar rétt yfir frostmarki í dag og fer mest í átta stig á Austfjörðum. Útlit er fyrir slyddu til fjalla og getur snjóað í 200 metra hæð og ofar. Úrkoman gæti náð inn á Norðurland en íbúar á sunnan- og vestanverðu landinu ættu að sleppa við hana að mestu.Víða er hálka á vegum og snjóþekja á Fjarðarheiði. Vegagerðin er víða að kanna aðstæður.Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:Austlæg eða breytileg átt, víða 3-10 í dag, en 8-15 á Vestfjörðum seinnipartinn. Rigning eða slydda með köflum á láglendi og snjókoma inn til landsins, en þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi. Breytileg átt 3-8 á morgun. Dálítil rigning eða skúrir sunnantil, smáél á Vestfjörðum en annars bjart með köflum. Hiti 1 til 8 stig að deginum, mildast á Austfjörðum
Svalt og sums staðar úrkoma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd