Nemendum í 10. bekk grunnskóla verður gefin lokaeinkunn í tölustöfum í vor samkvæmt nýju einkunnakerfi, verði áætlanir menntamálaráðherra að veruleika. Það verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem einkunnir í grunnskóla verða gefnar í tölustöfum, eða síðan bókstafseinkunnir voru teknar inn í aðalnámskrá 2011 og innleiddar að fullu 2015.Þegar Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti áætlun um að hverfa aftur til tölustafseinkunna sagðist hún vera að bregðast við ákalli frá foreldrum og kennurum um skýrara og samræmdara námsmat. Áform ráðherra hafa verið harðlega gagnrýnd og eru síst sögð ná markmiði sínu um að gera einkunnagjöf skýrari, samræmdari og auðskiljanlegri.„Það er ekki nóg að fullyrða að breytingar muni auka jafnræði og skýrleika. Það þarf að sýna fram á hvernig,“ segir ti