Rubio segir fund Zelenskys og Witkoffs jákvæðan

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að fundur milli Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta og Steve Witkoff, erindreka Bandaríkjastjórnar, í Osló hafi verið jákvæður. Hann bætti við að ekkert óvænt hefði komið fram á fundi þeirra í gær.Witkoff fundar með Vladimír Pútín Rússlandsforseta í dag. Jared Kushner, tengdasonur Bandaríkjaforseta, sækir einnig þann fund en í gegnum fjarfundabúnað samkvæmt heimildum AFP fréttaveitunnar.Zelensky fundaði einnig með Alexander Stubb, forseta Finnlands, og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, í gær. Á blaðamannafundi tilkynnti Zelensky að Starshield, kerfið sem sendir Úkraínuher viðvaranir um yfirvofandi loftárásir Rússa, væri aftur komið í gang.Kerfið, Starshield, er gervihnattakerfi sem bandaríski herinn notar til fjarskipta í hernaði og
Rubio segir fund Zelenskys og Witkoffs jákvæðan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd