Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra vísar til utanríkisráðuneytisins, spurður að því hvað felist í ýmsum útgjaldaliðum sem íslensk stjórnvöld telja til öryggis- og varnarmála. Fjárlaganefnd Alþingis var loks á föstudaginn afhent minnisblað frá utanríkis- og fjármálaráðuneytinu, eftir meira en eins árs bið, þar sem útgjöldin eru sundurliðuð.