Pólska þingið samþykkir breytingar á lögum um þungunarrof

Kosið var um tvenn lagafrumvörp til breytinga á lögum um þungunarrof á pólska þinginu í gær. Ríkisstjórn Donalds Tusk lofaði afglæpavæðingu þungunarrofs í aðdraganda pólsku þingkosninganna árið 2023. Erfitt hefur reynst að breyta lögunum því skiptar skoðanir eru um þungunarrof innan ríkisstjórnarinnar.Í Póllandi er að finna eina ströngustu þungunarrofslöggjöf Evrópu. Þungunarrof er með öllu óheimilt nema í tilfelli nauðgunar, sifjaspells eða ef meðganga stefnir lífi móðurinnar í hættu. MISMIKILL STUÐNINGUR VIÐ FRUMVÖRPIN Á ÞINGINU Flokkur Donalds Tusk, Borgaravettvangur og Vinstri bandalagið lögðu fram fyrra frumvarpið sem var kosið um en það snerist um að afglæpavæða þungunarrof og aðstoð við þungunarrof. Frumvarpið var samþykkt með 217 atkvæðum gegn 213, en þrír þingmenn sátu hjá.Hitt
Pólska þingið samþykkir breytingar á lögum um þungunarrof

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd