Atlantshafsbandalagið tilkynnti í gær að sendur verði liðsauki til Svartahafs vegna drónaárása á flutningaskip úti fyrir ströndum Búlgaríu og Rúmeníu undanfarið. Sex drónaárásir hafa verið gerðar þar á síðustu tíu dögum.Árásirnar hafa beinst að flutningaskipum sem sigla með korn og landbúnaðarvörur frá Úkraínu. Að minnsta kosti 23 er saknað eða hafa verið drepnir í árásunum.Bandalagsþjóðir NATO ætla að leggja til eftirlitsflugvélar á sjó, ratsjárkerfi, sprengjuleitarteymi, leyniþjónustuteymi, dróna og fleira að Svartahafi. Ekki hefur þó verið tilgreint hvaða bandalagsþjóðir ætla að senda liðsauka.Áður hafði forsætisráðherra Búlgaríu, Rumen Radev, greint frá því að bandarískar P-8 Poseidon herflugvélar hefðu hafið eftirlit við Svartahaf.Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sa