Fyrsta staðfesta tilfelli ebólu síðan 2014

Yfirvöld í Nígeríu hafa staðfest fyrsta tilfelli ebólu í landinu. Þetta er fyrsta tilfelli ebólu í Nígeríu síðan 2014. Kona sem hafði ferðast frá Úganda til Abuja, höfuðborgar Nígeríu, var lögð inn á spítala vegna veikinda en var síðan greind með ebólu.Konan er í einangrun og nýtur enn aðhlynningar vegna smitsins. Smitrakning er hafin og fylgst er náið með á fimmta tug einstaklinga sem hún var í samskiptum við sem gætu verið útsettir fyrir smiti. ÚTBREIDDASTI EBÓLUFARALDUR SÖGUNNAR Mannskæður ebólufaraldur kom fyrst upp í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í maí. Þar hafa komið upp 9.400 tilfelli og skráð dauðsföll eru orðin 4.500. Þetta er 17. og langskæðasti ebólufaraldurinn sem gengið hefur yfir Kongó.Bundibugyo-afbrigði veirunnar er sjaldgæft og ekkert viðurkennt bóluefni eða lyf eru til.
Fyrsta staðfesta tilfelli ebólu síðan 2014

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd