Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, stefnir samkvæmt heimildum Vísis í stjórn Litla spítalans, einkarekinnar heilbrigðisstofnunar sem til stendur að starfrækja við Háaleitisbraut. Núverandi forstjóri Sjúkratrygginga Íslands var skipaður af Willum.