Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar á Laugum var afturkallað eftir kæru fimm íbúa. Fyrirtækið bíður úrskurðar um bráðabirgðaleyfi.Samherji er stærsti einkarekni vinnustaðurinn á Laugum með um 20 starfsmenn. Katrín Sigurjónsdóttir, ráðinn sveitarstjóri í Þingeyjarsveit, hefur ítrekað mikilvægi starfseminnar í sveitarfélaginu. Fyrirtæki í eigu hennar og eiginmanns hennar hefur selt Samherja vörur um árabil.Ítarlegt viðtal við Katrínu má sjá hér neðst í fréttinni. KOMST UPP ÞEGAR ÍBÚAR SPURÐUST FYRIR Upp komst um viðskiptatengslin þegar Haraldur Sverrisson, einn kærendanna, óskaði eftir upplýsingum um möguleg hagsmunatengsl Katrínar við Samherja og fékk upplýsingar um viðskiptasamband fyrirtækis Katrínar, Samleiðar, við Samherja.Katrín segir sveitarstjórnina hafa verið meðvitaða um teng