„Þetta er bara grafalvarlegt,“ segir Agnes Ósk Marzellíusardóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um sölu falsaðra rafrænna skilríkja til yfir 300 ungmenna. Með kaupunum gátu ungmennin óafvitandi veitt ókunnugum aðila aðgang að viðkvæmum upplýsingum úr símum sínum.