Mörg sveitarfélög standa frammi fyrir erfiðari rekstri en áður. Við blasir að þau verða að fara í hagræðingaraðgerðir. Fámennasta og minnsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu er eitt þeirra.„Við, líkt og önnur sveitarfélög, stöndum náttúrulega frammi fyrir miklum áskorunum þessa dagana. Langvarandi verðbólga og hátt vaxtastig hafa sín áhrif. Og við sjáum bara fram á það að við verðum að fara í hagræðingaraðgerðir ef við ætlum að ná endum saman,“ segir Elísabet Ingunn Einarsdóttir, formaður bæjarráðs Seltjarnarnessbæjar. „OKKUR FANNST RÉTT AÐ BYRJA Á OKKUR“ Bæjarstjórinn lagði til tíu prósenta lækkun á launum sínum og bæjarfulltrúar hafa lækkað laun sín. Nákvæmar hagræðingartölur liggja ekki fyrir en þær skipta hundruðum milljóna.„Við þurfum að fara í frekari aðgerðir og okkur fannst r