Yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala kallar eftir frekari rannsóknum á notkun geðrofslyfsins quetiapíns við svefnleysi. Notendum lyfsins hefur fjölgað verulega á síðustu tíu árum, einkum meðal eldra fólks. Hún segir þær fáu rannsóknir sem liggja fyrir benda til þess að lyfið geti haft jafnmiklar aukaverkanir og hefðbundin svefnlyf.