Atvinnuleysi meðal þeirra sem lokið hafa prófi í tölvunarfræði eða skyldum greinum hefur aukist um 70% á tveimur árum.Tilkynnt var um tvær hópuppsagnir á sviði hugbúnaðar og upplýsingatækni í september og því má reikna með að þegar uppsagnarfresti starfsfólksins lýkur eigi enn eftir að bætast í hópinn.Alls voru rúmlega 8.800 manns atvinnulausir í september sem jafngildir 4% atvinnuleysi. Háskólamenntaðir eru um 30% þeirra.Ásta Ásgeirsdóttir, deildarstjóri gagnagreiningar hjá Vinnumálastofnun, segir að hlutfallið hafi haldist nokkuð stöðugt á undanförnum árum. Hafa þurfi í huga að háskólamenntaðir séu um 45% sem starfa á vinnumarkaði, þ.e. á aldrinum 25–65 ára. Atvinnuleysi hjá þessum hópi sé minna en hjá mörgum öðrum hópum.Almennt hafi fremur litlar breytingar orðið á atvinnuleysi einstakr