Kostnaður sem féll til hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna heimsóknar Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands fyrr í mánuðinum nam 15,5 milljónum króna. Heimsóknin kostaði embætti ríkislögreglustjóra 10 milljónir króna.Þetta segir samskiptastjóri ríkislögreglustjóra í svari við fyrirspurn fréttastofu.„Kostnaðurinn skýrist nánast eingöngu af vinnuframlagi lögreglu og akstri lögreglutækja,“ segir í svarinu.Rubio kom til landsins 5. október til að ræða við ráðamenn um samvinnu á sviði efnahags- og öryggismála.