Þúsundir vilja óháða úttekt á meðferð dómstóla á kynferðis- og kynbundnum ofbeldismálum eftir að Landsréttur sýknaði mann á fertugsaldri af nauðgun.Fórnarlamb mannsins, kona, hlaut alvarlega áverka.Í rökstuðningi dómsins fyrir sýknunni segir að konan hafi, meðal annars, samþykkt í skilaboðum að maðurinn beitti sig hörku í kynlífi.Niðurstöður rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna gefa til kynna að mun algengara sé að yngri konur séu beittar kynferðisofbeldi.Rannsakandi óttast að búið sé að normalísera ofbeldi sem hluta af kynlífi. LANDSRÉTTUR SNERI VIÐ DÓMI HÉRAÐSDÓMS REYKJAVÍKUR Maðurinn hafði verið sakfelldur og dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi fyrir ofbeldi gegn konunni.Í ákæru er því meðal annars lýst að hann hafi slegið konuna í andlitið, þrýst hné sínu á efri hluta bringu hennar