Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segist reiðubúinn að setjast til viðræðna með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands um stríðið í Úkraínu.Þetta sagði hann á blaðamannafundi í Osló síðdegis, þar sem hann hefur setið á fundum fyrst með Steve Witkoff, erindreka Bandaríkjastjórnar, og svo forsætisráðherra Noregs og forseta Finnlands.Zelensky segir að Witkoff ætli að halda til Moskvu á morgun, væntanlega til fundar við stjórnvöld þar.Alexander Stubb, forseti Finnlands, sagði á blaðamannafundinum að merkjanlegur árangur hefði náðst með fundum dagsins í því að lappa upp á samband Bandaríkjanna og Úkraínu. Það var eitt markmið fundanna í morgun.Sambandið hefur laskast síðustu daga og vikur, ekki síst eftir að Trump Bandaríkjaforseti sagðist vilja koma Zelensky frá völdum í Úkraínu.Þá segja Úkraínum