Borgarstjóri segist ekki geta séð að hagsmunum borgarbúa sé betur borgið eftir fjölgun borgarfulltrúa. Hægt sé að skoða hvort einhver hluti borgarfulltrúa geti verið í hlutastarfi. TÖLUVERÐUR AUKA KOSTNAÐUR FYRIR BORGARSJÓÐ Meirihluti borgarstjórnar lagði fram áskorun til Alþingis í byrjun mánaðar um að gera sveitarfélögum kleift að ráða fjölda kjörinna fulltrúa í eigin sveitarstjórn. Innviðaráðherra hefur lagt fram frumvarp um heildarendurskoðun á sveitarstjórnarlögum.Borgarfulltrúum fjölgaði úr 15 í 23 árið 2018. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur verið gagnrýnin á þá fjölgun.„Bæði felur þetta auðvitað í sér töluverðan kostnaðarauka fyrir borgarsjóð, að vera með fleiri borgarfulltrúa á fullum launum og þetta er auðvitað svolítið óhefðbundið í Reykjavík. Ef við berum okkur saman vi