Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands

Áhöfn björgunarskipsins Sigurvins var kölluð út vegna 475 tonna fiskiskips, Hildar, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og í kjölfarið orðið aflvana. Þetta kemur fram í tilkynningu Landsbjargar.Þar segir að skipið hafi verið statt um miðja vegu milli Siglufjarðar og Grímseyjar þegar það fékk veiðifærin í skrúfuna. Veður á staðnum hafi verið ágætt. Átta hafi verið í áhöfn skipsins en hafi ekki verið í neinni hættu.Skipið hafi verið dregið á Dalvík eftir að taug var komið á milli skipanna. Ferðin hafi gengið örugglega fyrir sig og skipin komin í höfn rétt upp úr fjögur í dag.Björgunarskipið Sigurvin heldur nú aftur til Siglufjarðar þar sem það verður gert klárt til útkalls.
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til lands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd