Reykjavíkurborg skoðar að hafa aðeins einn inngang opinn í grunnskólum á ákveðnum tímum skóladagsins og stýra betur hverjir komast inn. Borgarstjóri greindi frá þessu þegar hún svaraði fyrirspurn um öryggi í skólum og frásagnir af kennurum sem hefðu orðið fyrir ofbeldi.