Sebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hét því í dag að kalla til gríðarmikið lið lögreglu næstu helgi, þegar næstu mótmæli í landinu eru fyrirhuguð.Hann mátti þola mjög harða gagnrýni í franska þinginu í dag vegna óeirðanna sem geisað hafa undanfarið og náðu hámarki á laugardag.Stjórnarandstöðu finnst viðbrögð ríkisstjórnarinnar ekki nógu góð. Lecornu viðurkenndi að ekki nógu vel hefði verið staðið að löggæslu undanfarið og hét því að bætt yrðu verulega í.Lecornu tilkynnti í morgun að útgöngubann í frönskum borgum tæki aftur gildi í kvöld. Hann sagði útgöngubann um liðna nótt hafa skilað tilætluðum árangri.Hann sagði fyrir þinginu síðdegis að öfgavinstrihópar hneigðust til uppreisna í landinu og hygðust nota mótmæli og óeirðir til að fá sínu framgengt.Þjóðfélagssástandið í Frakkl