Uppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fangelsinu við Stóra-Hraun ásamt fangelsismálastjóra og bæjarstjóra Árborgar.Stóra-Hraun verður öryggisfangelsi með 128 rýmum fyrir afplánun og bættri aðstöðu. Dómsmálaráðherra segir áfangan gleðiefni. Ísland hafi ekki átt öryggisfangelsi til þessa og við blasi að fangelsispláss hafi vantað í mörg ár.„Þeim hefur ekkert fjölgað á sama tíma og þjóðinni hefur fjölgað stórkostlega og allt landslag afbrota hefur breyst til mikilla muna. Dómar eru að fyrnast sem þýðir á íslensku að maður er dæmdur til fangelsisvistar þarf ekki að afplána dóminn. Það eru auðvitað eins óheilbrigð skilaboð til samfélagsins og hugsast getur.“ GETUM EKKI VERIÐ STOLT AF