Áfrýjunarnefnd samkeppnismála taldi rannsókn Samkeppniseftirlitsins gegn Landsvirkjun haldna verulegum annmörkum á grundvallaratriðum málsins, meðal annars við skilgreiningu markaða og mat á samkeppnishamlandi áhrifum verðlagningar orkufyrirtækisins, og er niðurstaðan sögð hafa „verulega þýðingu fyrir íslenskt atvinnulíf.“ Eftirlitið aflaði ekki upplýsinga um raunverulegan innkaupakostnað keppinauta Landsvirkjunar áður en það komst að þeirri niðurstöðu að orkufyrirtækið hefði með ólögmætum verðþrýstingi gert þeim ómögulegt að keppa við sig án þess að tapa á viðskiptunum.