Sprengjuhótanir hafa borist ýmsum ríkisstofnunum og fyrirtækjum að undanförnu. Sprengjusveit sérsveitar var kölluð út í síðustu viku vegna hótana sem bárust forsætis- og dómsmálaráðuneytinu í tölvupósti. Sambærilegur tölvupóstur var sendur víða.Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir sprengjuhótanir enn að berast. Lögreglan hefur þær til rannsóknar. Spurður hvort þær hafi borist að utan segir hann lögreglu ekki veita frekari upplýsingar á meðan ekki er komin betri mynd á málið, en ekki er talin hætta á ferðum að svo stöddu.