Fyrsta skóflustungan að Stóra-Hrauni

Uppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fangelsinu við Stóra-Hraun.Að stuttri athöfn lokinni var boðað til samkomu í veislusal Byggðasafns Árnesinga þar sem Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar og Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri héldu tölu.Stóra-Hraun verður öryggisfangelsi með 128 rýmum fyrir afplánun og bættri aðstöðu til að aðskilja fanga eftir þörfum, efla öryggi og skapa betri skilyrði fyrir menntun, endurhæfingu og meðferð.Framkvæmdinni verður skipt í tvo áfanga. Í þeim fyrri verður lögð áhersla á almenn fangarými sem rúma 56 fanga, skólabyggingu, eina vinnustofu, vöruhús og aðalbyggingu. Áætlaður kostnaður við fyrri hlutann er 17,8 milljarðar og eru þær framkvæmdir fjár
Fyrsta skóflustungan að Stóra-Hrauni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd