Gagnaver orðin að brennheitu kosningamáli vestanhafs

Sífellt fleiri Repúblikanar snúast gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta þegar kemur að uppbyggingu gagnavera þar vestra. Samhliða hefur óánægja kjósenda með þessar orku- og plássfreku framkvæmdir farið vaxandi.Þegar innan við tvær vikur eru til miðkosninga í Bandaríkjunum hafa frambjóðendur úr báðum flokkum reynt að gera hosur sínar grænar fyrir kjósendum með því að tala gegn gagnaverum og jafnvel sagst ætla að banna uppbyggingu þeirra.Gagnaver hafa enda sprottið upp eins og gorkúlur í Bandaríkjunum síðustu misseri. Í slíkum verum er óheyrilegt magn gagna geymt til þess að geta betur keyrt og fætt gervigreindarforrit, sem njóta síaukinna vinsælda. Svo hægt sé að nota gervigreindarforrit eins og ChatGPT, Claude, Gemini eða Grok hnökralaust verður að starfrækja gagnaver með tilheyrandi áhrifu
Gagnaver orðin að brennheitu kosningamáli vestanhafs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd