Íslensk stjórnvöld vilja að 65% íslenskra barna verði komin með grunnhæfni í lesskilningi við lok grunnskóla árið 2030, og að 68% verði komin með grunnhæfni í stærðfræði.Þetta kemur fram í drögum Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu stjórnvalda, þar sem útlistuð eru fjögur lykilmarkið til ársins 2030.Athygli vekur að þetta er í fyrsta sinn sem stjórnvöld setja fram slík lykilmarkmið í aðgerðaáætlunum menntastefnunnar.Hin tvö lykilmarkmiðin eru að 60% fimmtán ára drengja öðlist grunnhæfni í lesskilningi fyrir sama tíma, og að 80% nemenda sem ekki ná grunnhæfni samkvæmt Matsferli fái viðeigandi stuðning í námi innan átta vikna.Aðgerðaáætlunin á að ná yfir árin 2027 til 2030, og hafa drögin að henni nú verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þar segir