Borgarstjórn samþykkti í dag tillögu meirihlutans um að hefja athugun á útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Menningar- og íþróttasviði borgarinnar verður falið í samráði við fjármála- og áhættustýringasvið að kortleggja rekstur garðsins og meðal annars leggja mat á kostnað borgarinnar af rekstrinum og hvort einkaaðilar hafi áhuga á að taka við honum með einhverjum hætti. Gert er ráð fyrir að þessari vinnu ljúki á fyrri hluta næsta árs.Húsdýragarðurinn var opnaður árið 1990 og Fjölskyldugarðurinn þremur árum síðar. Fram kom í máli Bjarna Guðjónssonar borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og formanni íþrótta- og útilífsráðs á fundi borgarstjórnar í dag að fjárframlög borgarinnar til garðsins á síðasta ári hafi numið 495 milljónum króna.Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar og forse