Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit, Katrín Sigurjónsdóttir, er eigandi fyrirtækis sem selur Samherja skreiðarpoka og þurrkgrindur fyrir skreiðarþurrkun útgerðarfyrirtækisins á Laugum í sveitarfélaginu. Fiskþurrkun Samherja er stærsti einkarekni atvinnurekandinn á Laugum með um 20 starfsmenn. > Það er nákvæmlega ekkert gruggugt við þetta. Viðskipti fyrirtækis Katrínar, sem heitir Samleið ehf., við Samherja hafa staðið yfir í mörg ár, líka þegar hún var sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. Samherji rekur einnig skreiðarþurrkun á Dalvík. Katrín á fyrirtækið á móti eiginmanni sínum.Katrín segir að engir hagsmunaárekstrar séu í málinu. „Það er nákvæmlega ekkert gruggugt við þetta.“ Katrín segir aðspurð að hún sé ekki með upplýsingar um það hversu mikil viðskipti Samleiðar séu við Samherja. Sveitarstj