Mikilvægt að almenningur geti treyst dómstólum

Hátt í fjögur þúsund hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem skorað er á Alþingi og dómsmálaráðherra að beita sér fyrir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála, frá rannsókn til dómsmeðferðar.Ábyrgðarmaður listans segir fólk þurfa að standa saman og mikinn kraft í samstöðunni. GAT EKKI HORFT Á ÞETTA GERAST OG EKKI GERT NEITT Þegar þessi frétt er skrifuð hafa 3843 skrifað undir og er undirskriftarlistinn opinn til 30. nóvember.Undirskriftarlistinn kemur í kjölfar þess að Landsréttur sýknaði karlmann af ákæru um nauðgun. Hann hafði verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Konan í málinu hlaut alvarlega áverka.Landsréttur klofnaði í dómi sínum. Tveir dómarar sýknuðu manninn en sá þriðji skilaði sératkvæði, taldi rétt að sakfella hann og staðfesta dóm héra
Mikilvægt að almenningur geti treyst dómstólum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd