Raunverð íbúða hefur lækkað 14 mánuði í röð

Íbúðaverð hefur ekki haldið í við verðbólgu síðustu 14 mánuði og útlit er fyrir að sú verði raunin út næsta ár. Þetta kemur fram í tilkynningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um þróun vísitölu íbúðaverðs. Vísitalan hækkaði um 1,06 prósent í síðasta mánuði, sem er mesta hækkun milli mánaða síðan í ársbyrjun. Sú hækkun breytir því þó ekki að íbúðaverð hefur lækkað að raunvirði um nærri 3,9 prósent að raunvirði síðustu 12 mánuði. Verðhækkanir í síðasta mánuði má að mestu rekja til sérbýlis og fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu. Sérbýli á landsbyggðinni lækkaði milli mánaða en fjölbýli hækkaði í verði.HMS bendir á að bankarnir spá því að íbúðaverð lækki að raunvirði um 1,6 til 3,1 prósent á næsta ári.
Raunverð íbúða hefur lækkað 14 mánuði í röð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd