Greinendur erlendra fjárfestingabanka telja verulegt svigrúm til hækkunar á hlutabréfaverði Alvotech á næstu misserum samhliða minnkandi óvissu um framleiðslumál félagsins og tekjur af líftæknilyfjahliðstæðum sem þegar eru á markaði verði meiri til lengri tíma en áður var áætlað. Nýtt samþykki FDA fyrir framleiðsluferli Alvotech er einnig sagt geta lækkað framleiðslukostnað umtalsvert og aukið afkastagetuna án frekari fjárfestinga.