Gunnar Lárus Karlsson er Íslandsmeistari í bakgarðshlaupum. Hann hljóp 462,3 kílómetra á 69 klukkustundum.Landsliðakeppni í bakgarðshlaupum hófst á hádegi á laugardag og gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra hring á klukkustund, eins oft og hægt er.Fimmtán hlauparar eru í íslenska landsliðshópnum en hættu keppni einn af öðrum.Guðjón Sigurðsson lauk 68 hringjum og Guðmundur Lúther Hallgrímsson 63 hringjum. SIGURVEGARINN BJÓST EKKI VIÐ ÞVÍ AÐ VINNA Landsliðskeppnin hófst á sama tíma um allan heim, klukkan 12 á laugardag.Garpur I. Elísabetarson, sem stýrði beinni útsendingu keppninnar á Vísi, segir að það hafi verið ótrúlegt að fylgjast með öllum fimmtán hlaupurunum í íslenska landsliðinu berjast í gegnum veðurviðvaranir og myrkur um helgina. Hverjir skipuðu landslið Íslands í bakgarðshlaupu